Um mig

 

Um mig :

Óðinn heiti ég og hef áhuga á pólitík, borgarmálum og þá sérstaklega samgöngu og skipulagsmálum. 


Menntun :

Hef verið frekar latur í að mennta mig og er því bara með grunnskólamenntun.
Tel mig þó vita heilmargt. Sérstaklega um samgöngumál, skipulagsmál og pólitík.



Pólitík :
Ég hef  áhuga á pólitík og var félagi í stjórnmálaflokknum Viðreisn sem er hægrimiðju stjórnmálaflokkur mitt á milli Sjálfstæðisflokksins og Bjartrar framtíðar og var meðlimur í þeim flokki síðan í Apríl 2018.
Áður var ég í Pírötum frá Maí 2015 - Október 2017, en sá flokkur var, á þeim tíma allaveganna, frjálslyndur alþjóðahyggjusinnaður miðjuflokkur á svipuðum stað og Björt framtíð.

Ég er miðjumaður mitt á milli hægri og vinstri í alþjóðahyggjusinnu skalanum.

Mér líkar því vel við sumt sem hefur verið gert á vinstri væng stjórnmálanna, eins og heilbrigðis og menntakerfi rekið af ríkinu og hef verið fylgjandi vinstri flokkum hvað þennan lið varðar, þótt ég telji mig frekar vera alþjóðahyggjusinnaðan miðjumann á svipuðum stað og Björt framtíð og Viðreisn.

Hef einnig verið meðlimur í Samfylkingunni sem er vinstrimiðjuflokkur.

Mér finnst sumt vera gott gert undir vinstri stefnunni. 
M.a. Tel ég að innviðir samfélagsins eigi að vera reknir félagslega. 
Eins og t.d. Menntakerfið og heilbrigðiskerfið. 
Þó með þeim fyrirvara ða hverjum og einum er að sjálfsögðu í sjálfvald sett hvort viðkomandi stofni sitt eigið heilbrigðis eða menntafyrirtæki án aðkomu ríkisins með fjármunum.
Einka/samkeppnisrekstur á rétt á sér í annarri starfsemi.
T.d. Finnst mér algjör óþarfi að ríkið sé að reka vínbúð enda flokkast áfengi og tóbak ekki sem innviða semfélagsins. 
Þetta er samkeppnisrekstur og ber að selja Vínbúðina að mínu mati. 
Sama má segja um fleiri samkeppnisrekstur.
Tel að það sé margt sem hefur verið gert gott á nágrannalöndunum okkar eins og Danmörk og Svíþjóð undir merkjum vinstri pólitíkar, og sumt í öðrum löndum þar sem hefur verið vinstri stefna.
Á Kúbu hefur t.d. sumt verið gert gott.

Mér finnst líka sumt gott vera gert undir merkjum hægri pólitíkar.
Og hvef veirð fylgjandi hægri flokkum hvað efnahagsmálin varðar meðal annars.

Þessvegna hef ég bæði verið í Samfylkingunni sem er vinstrimiðjuflokkur og líka í Viðreisn sem er hægrimiðjuflokkur.

Ég hef kynnt mér stefnur og starfsemi flokka á vinstri væng stjórnmálanna, til að fá betri innsýn inn í hugarheim þeirra sem vilja koma á vinstristefnu og hvað sé ætlunin að gera af þeirra hálfu. 
Auk þess sem ég hef, eins og áður kom fram, verið fylgjandi vinstri flokkum hvað heilbrigðis og menntamálin varðar með áðurnefndum fyrirvörum
Bæði kynnt mér starfsemi flokkanna hér á netinu og Fésbókinni.

Hef einnig verið á tilkynningafréttabréfspóstlista hjá sumum flokkanna. 

Held það hafi ekki verið ósvipað Alþýðublaðinu og Verkalýðsblaðinu sem kom út hér fyrir nokkrum áratugum.
Og fylgst með þegar meðlimir sumra stjórnmálaflokkanna ræddu saman um stefnur og tóku ákvarðanir.
Allt var þetta gert til að sjá hvað hver og einn flokkur hafði upp á að bjóða fyrir okkur sem erum ekki stjórnmálamenn, ekki á framboðslista fyrir neinn flokk og ekki í stjórnendastöðum í stjórnmálaflokkum.

Hef verið meðlimur í Viðreisn, Samfylkingunni og Pírötum sem eru miðjuflokkar, þótt Samfylkingin hafi að vísu að mínu mati fjarlægst frekar langt til vinstri eftir að Logi Einarsson tók við.


Var stjórnandi í Facebookhópnum "Vinstri félagshuggjusinnar" þar sem reynt var að sameina vinstrimenn á einn stað. Það tókst ekki.
M.a.s þótt sett var opnumynd með merkjum vinstri stefnunnar!

Í staðinn voru, mjög margir allaveganna,  virkir meðlimir í hópum í sínum eigin stjórnmálaflokkum.
Meðlimir í hópnum voru þekktir aðilar úr stjórnmálum á vinstri vængnum.
Á sama tíma var og er starfræktur hópur "Frjálshyggjufélagið" á hægri vængnum þar sem margir frjálshyggjumenn eru meðlimir.

Það er mjög skrýtið.

Frjálshyggjumenn eru því með samtakamáttinn á hreinu sýnist mér.


Mér líkar mjög illa við Sjálfstæðisflokkinn eins og hann er í dag - enda hefur hann, að mínu mati, fjarlægst mjög upprunalegu skilgreininguna um frelsi.

Hann er að mínu mati kominn alltof langt til hægri.

Margir deila þessari skoðun með mér, enda voru margir fyrrverandi félagar úr Sjálfstæðisflokknum sem gengu til liðs við Pírata þegar þeir fóru á flug í skoðannakönnunum vorið 2015.
Sjálfur var ég líka í Pírötum frá Maí 2015 - Október 2017.

Píratar hafa þó farið of langt til vinstri til að geta lengur flokkast sem frjálslyndur miðjuflokkur og margir, m.a. ég, gengið til liðs við Viðreisn.

Af einhverjum ástæðum hef ég fengið "vinstri" stimpil á mig án þess að ég hafi nokkurntímann verið í fosvari fyrir þannig stefnu. 

Þeir sem hafa kallað mig það segja yfirleitt að ég hafi deilt myndskeiðum af pólitíkinni frá Kúbu á Facebooksíðuna mína og myndir af skiltum þaðan. Sem er mjög skrýtið að segja, enda fyrst og fremst gert af áhuga um menninguna þar, enda hef ég farið þangað sem ferðamaður.

Margir segja það líka af því ég hafi verið "að pönkast í Bjarna Ben og gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn". 
Sem er líka mjög skrýtin afsökun enda það að gagnrýna stefnu einhvers flokks á hægri vængnum ekki það sama og vera vinstri maður. 
Mér er alls ekki illa við Bjarna Benediktsson sem manneskju þótt ég hafi gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn sem stjórnmálaflokk, og þótt einhver hafi notað mitt nafn á netinu til að tala illa um Bjarna Ben.
Ég og margir aðrir kjósum að framfylgja upprunalegu stefnu Sjálfstæðisflokksins um frelsismál og höfum því gagnrýnt þann flokk fyrir að hafa fjarlægst þá stefnu.

Einnig er líka látið í veðri vaka að ég sé vinstri maður af því ég sé með svo marga vinstri menn á Facebook vinalistanum mínun sem er líka skrýtin ásökun, enda margir frjálshyggjumenn með vinstri menn á sínum vinalista og "læka", "kommenta" og hafa samband við þá í gegnum samfélagsmiðla.

Sjálfur hef ég verið í miklum samskiptum við vinstri menn í borgarpólitíkinni, enda tel ég þau vera á réttri leið hvað samgöngu og skipulagsmál varðar. Sem er mitt uppáhalds áhugamál.
Ólíkt Sjálfstæðisflokknum sem er skrýtið í ljósi orðsins "Sjálfstæði".
Mér hefur þó fundist vanta sumt af frelsismálunum hvað samgöngu og skipulagsmálin varðar.
Meðal annars tel ég óþarfi að hafa svona margar hraðahindranir í borginni, og finnst mikilvægt að umferðarljós fyrir bílaumferðina seú samstillt svo dæmi sé tekið.
En ég er fylgjandi fleiri hjólastígum, endurgerð gatna með aðgengi fyrir alla ferðamáta, betri Strætó og þéttingu byggðar svo lengi sem það sé ekki byggt á útivistarsvæðum.

Eins finnst mér mikilvægt að hafa minna stjórnkerfi og lægri skatta.
Því hef ég stundum verið fylgjandi meirihlutanum en stundum Sjálfstæðisflokknum eftir því hvað fjallað hefur verið um.

Auk þess sem ég hef enga hagsmuna að gæta að fá hér vinstri stefnu, enda er ég ekki í neinum stjórnendastöðum í neinum stjórnmálaflokki.

Mér líkar líka mjög illa við Framsóknarflokkinn og Miðflokkinn útaf stefnu þeirra flokka í útlendingamálum.

Ég er því aljþoðahyggjusinnaður miðjumaður í sömu línu og Samfylkingin, Píratar, Björt framtíð og Viðreisn.

Mögulega gæti ég flokkast sem meiri hægrimiðjumaður heldur en vinstirmiðjumaður. En það er frekar erfitt að segja til um það nákvæmlega. Ég er allaveganna einhverstaðar á miðjunni í alþjóðahyggjusinnuskalanum.
Mér líkar við sumt úr vinstri pólitík og sumt úr hægri pólitík.


Borgarmál :
Hef verið virkur í umræðum um borgarmál og verið meðlimur í hinum ýmsu Facebookhópum tengdum umhverfis og skipulagsmálum.
M.a. "Borgin - Umhverfis og skipulagsmál", "Samgönguhjólreiðar", "Samtök um bíllausan lífsstíl" og fleiri hópum.

Hef verið stuðningsaðili núverandi og fyrrverandi meirihluta í borginni hvað samgöngu og skipulagsmálin varðar þó mér hafi fundist vanta sumt af frelsismálunum. 
Mér hefur þó fundist vanta sumt af frelsismálunum hvað samgöngu og skipulagsmálin varðar.
Meðal annars tel ég óþarfi að hafa svona margar hraðahindranir í borginni, og finnst mikilvægt að umferðarljós fyrir bílaumferðina seú samstillt svo dæmi sé tekið.
En ég er fylgjandi fleiri hjólastígum, endurgerð gatna með aðgengi fyrir alla ferðamáta, betri Strætó og þéttingu byggðar svo lengi sem það sé ekki byggt á útivistarsvæðum.
Eins finnst mér mikilvægt að hafa minna stjórnkerfi og lægri skatta.
Því hef ég stundum verið fylgjandi meirihlutanum en stundum Sjálfstæðisflokknum eftir því hvað fjallað hefur verið um.


Frá 2010-2014 þegar Samfylkingin og Besti flokkurinn voru í meirihluta í borginni og núna frá 2014 - 2018 þegar Samfylkingin, Besti flokkurinn og Píratar með VG.
Fylgjandi þeim flokkum hvað samgöngu og skipua-lagsmálin varðar með áðurnefndum rökum.

Þessir flokkar hafa haft frelsismál í samgöngu og skipulagsmálum á hreinu og gert fleiri hjólastíga, betra aðgengi gangandi og betri Strætó.
En mér hefur þó fundist vanta meira frelsi fyrir þá sem fara um á bíl.

Allaveganna hef ég ekki skilið það öðruvísi en svo miðað við hvað forsvarsmenn þessara flokka í borginni hafa gefið út.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hefur þó, eins og á landsvísu, ekki haft frelsismál í samgöngum og skipulagi á hreinu og bara talað um aðgengi fyrir einn ferðamáta og gamaldags skipulag.

Hef lagt mitt á mörkum í umræðunni um þessi mál og stutt það að allir ferðamátar fái að njóta sín í skipulagi borgarinnar. 

Þeir sem kjósa þægindi og vilja fara um á bíl geti komist um á bíl án þess að þurfa að fara yfir hundruði hraðahindrana. 
Þeir sem vilji fara um gangandi og/eða á hjóli og fengið hreyfingu áður en farið er í vinnnu eða úr vinnu og sparað pening, geti gert það á góðum gangstéttum og góðum hjólastígum með góðum þverunum yfir götur. 
Þeir sem vilji fara um með Strætó og láta aðra keyra fyrir sig og sparað pening geti farið með Strætó og Strætó verði ákjósanlegur ferðamáti.

Það er að mínu mati ekki hluti valdhafa að ráðskast með líf fólks og gera bara ráð fyrir einum ferðamáta.

Framboð ræðst að eftirspurn og eftirpsurn frá fólki í borginni eftir betri aðstöðu fyrir gangandi,hjólandi og Strætó hefur aukist ár frá ári og hef lagt mitt af mörkum í að styðja frelsismál í samgöngum og skipulagi.

Hef líka verið virkur í LHM (Landssamtökum hjólreiðamanna) þar sem ég hef verið í stjórn frá Apríl 2017. Þar er svo sannarlega af nægju að taka til að hjólreiðar verði ákjósanlegur ferðamáti í skipulaginu.


Ferðalög :


Hef farið til eftirtalinna landa : Danmerkur, Spánar, Noregs, Boston, Florida og Kúbu.

Kúbu fór ég til í Desember 2012, Júlí 2015, Júní 2017 og Desember 2017.
Þar á ég stjúpfjölskyldu og hef ég tekið þónokkuð af myndum og kynnst menningunni þar. 

Svo margar voru myndirnar
að einn mér nágkominn varð nóg boðið og sagði í nóvember "ekki vera með svona mikinn kommúnista áróður á Facebook Óðinn minn".

Þetta fannst mér mjög fyndið í ljósi þess að það að fara til Kúbu sem ferðamaður og taka myndir þar, bæði af menningunni og öðru, mun nú seint teljast til áróðurs fyrir slíka stefnu. 

Sjálfur sagðist ég hafa verið meðvitaður um það þegar ég setti það inn að á myndunum væri eitthvað tengt slíkri stefnu enda sýndu þær kúbverska menningu.

Enda þrátt fyrir að myndirnar tengdust slíkri stefnu, voru myndirnar fyrst og fremst teknar til minningar um ferðalög mín þangað og til að sýna Facebookvinum mínum myndir þaðan. Ekki sem áróður. Orðið "áróður" var því ofsagt.

Einnig hef ég horft á þó nokkuð af myndskeiðum á Youtube þaðan og skoðað á Facebook.
Bæði venulegum myndböndum af landinu sjálfu og pólitíkinni þaðan. 
Það var mjög áhugavert að skoða myndbönd þaðan á Youtube sem og frá öðrum löndum sem voru með víðlíka stefnu.
Enda mjög áhugavert að kynnast menningunni þar og hvernig pólitíkin þar virkar/virkaði.

Hvet alla til að fara til Kúbu, enda frábært land / frábær eyja.


Til Danmerkur, Noregs og Spánar hef ég einnig farið. 
Það er óþarfi að fara nánar út í þau lönd á þessum vetvangi, enda held ég lönd sem flestir fullorðnir íslendingar ættu að þekkja.

Millilenti í Boston er ég vár á leiðinni til Kúbu í Desember 2012.
TIl Florida fór ég í Júní 2017. Nánar tiltekið til Miami þar sem stoppað var stutt áður en haldið var áleiðis til Kúbu. Og aftur á baka leiðinni. 
Frábær borg í frábæru landi í frábærum ríkjum.

Og að sjálfsögðu hef ég líka ferðast innanlands.

Mótmæli :

Fylgdist reglulega með mótmælum þgar vinstri stjórn Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna reyndi að koma upp á okkur skuldum óreiðumanna 2009-2013.
Mótmælti að sjálfsögðu mjög friðsamlega.

Sjálfur hef ég aldrei verið góður mótmælandi, enda við miðjumenn og frjálshyggjumiðjumenn (og konur) að ég held mörg hver ekki eins góð í að mótmæla eins og sumir vinstri menn.

Hafna öllu ofbeldi:

Ég hafna öllu ofbeldi og var m.a. einn af mörgþúsund manns sem gagnrýntu harkalega framkomu karlmanns sem starfaði sem lögregluþjónn er hann handtók konu á Laugaveginum eitt sumar fyrir nokkrum árum. 
Gott ef það var ekki sumarið 2013. 
Umræddur maður var svo síðar dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir umrædda handtöku og var því ljóst að gagnrýnin átti rétt á sér.
Svona svo dæmi sé tekið.

Hef einnig barist gegn því að almennir lögregluþjónar myndu bera vopn, enda, að mínu mati, myndi það leiða til þess að margir glæpamenn myndu bera vopn á almannafæri líka, vitandi það að almennir lögreglumenn (og konur) myndu bera slík vopn. 
Og glæpamenn að bera vopn á almannafæri hefur ekki alltaf endað neitt sérstaklega vel. 
Sumir glæpamenn eiga það til að vera hvatvísir og grípa til vopna áður en dæmið er hugsað til enda.
Tel að það sé nóg að hafa sérsveitina eins og hefur verið.

Tómstundir :

Hef reglulega farið út að hjóla og hef nokkurnveginn kannað hvern krók og kima á höfuðborgarsvæðinu. M.a. skoðað aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi ásamt fleiru er tengist borgarmálum, enda umhverfis, skipulags og samgöngumál mitt áhugamál.

Fór einnig stundum út að hlaupa í Öskjuhlíðinni. Sérstaklega árið 2016, enda var ég þá í hlutastarfi við að bera út póst í Suðurhlíðunum, sem er hverfi alveg upp við Öskjuhlíðina. Hverfið milli lífs og dauða. 
(Milli Fossvogsspítala og Fossvogskirkjugarðs.)


Laus við áfengi, eiturlyf og sígarettur :

Er að mestu laus við áfengi. 
Drekk stundum í mjög litlu magni þegar eitthvað er um að vera.
Er alveg laus við dóp, eiturlyf og fíkniefni. 
Hef aldrei nokkurntímann notað slík efni.
Er líka laus við sígarettur og hef aldrei reykt.
Hef aldrei beitt neinn ofbeldi eða komist í kast við lögin á neinn hátt.


Þetta er nokkurnveginn allt. 

Mun þó mögulega bæta við fleiru einhvern tímann seinna ef ég man eftir einhverju. :)


- - - - 

- The end.

Ó.S.R.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

odinn1

Höfundur

Óðinn Snær Ragnarsson
Óðinn Snær Ragnarsson

Um mig : https://odinn1.blog.is/blog/odinn1/entry/2218894/

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • innvidirvssamkeppni

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband